web log free Biere De Boucanier
     

HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
  fróðleikur
 
 
 

Biére du Boucanier

stíll : Belgískt brúnöl / sterköl
brugghús : Brouwerij Icobes
land : Belgía
alkóhól : 9.5 %
fyrst smakkað : 30.4.2003
smökkunarstaður : Århus

Biére Du Boucanier eða bjór sjóræningjanna eins og nafnið þýðir er eki árennilegur við fyrstu sýn.  Tannlausi kappinn með leppinn utan á flöskunni fær mann til að halda að flaskan hafi einhvern ruddabjór að geima eða jafnvel romm.  Þegar tappinn er fokinn og þessi brúni mjöður er ofan í glas komið mætir manni hins vegar mjög þróttmikil lykt sem minnir helst á seytt rúgbrauð með ögn sveskjum og sætu alkóhóli og svo lurir humallinn í bakgrunni.  Í munni  er þessi sjóræningi afar bragðmikill með miklu sætu rúgbrauði, þó nokkuð vínlegum karakter og sætum ávaxtarkeim.  Þrusu fylling er í þeim þessum og svo er eftirbragð með ólíkindum ljúffengt og gott.  Ég get vel mælt með þessu öfluga og spennandi öli