|
Ég veit ekki alveg sögu þessa bjórs en hann kemur frá
litlu fjölskyldubrugghúsi á Fjóni er
Refsvindinge heitir en þar hefur verið bruggaður
bjór síðan 1905. Svo virðist sem
Den Gamle By hafi valið þennan bjór til sölu í
bænum sem er eins konar þjóðminjasafn hér í Árósum
og ætti það nú að teljast góð meðmæli eitt og sér.
Í nefi minnir hann helst á Egils malt. Sætt en
humlað. Ekkert sem minnir beint á öl á tungu eða
yfirgerjaðan bjór eins og þeir segja að þetta sé.
Þetta er frekar einfaldur bjór í þeim skilningi að
bragð er ekki fjölbreitt og flókið eins og oft er
með ölið. Allt frútt vantar. Minnir helst á
góðan lager eins og Carls Special eða jóla
Tuborg. Fín fylling með ljúfu eftirbragði.
Nettir humlar og lítill biturleiki. Þegar
bjórinn hitnar þá fer hann líka að þynnast smám
saman og gefur ögn sætan maltkeim. Í heildina
ansi góður danskur bjór sem ætti hins vegar að titla
sem lager frekar en yfirgerjað öl. |