|

Duchesse er flæmst rauðöl eins og það gerist best.
Dálítið í anda Rodenbach en þó ekki eins. Í
nefi má finna ögn súran keim og vínlegan sem minnir
á "sérrí". Einnig málmur eða ryð?
Í munni gælir sopinn við allar skynfrumur með
ferskum, gosríkum og sætum keim sem minnir á
brenndan sykur eða kandís. Mikill málmur og
svo er súr eins konar mysukeimur eins og rauðöli
sæmir. Þetta er afskaplega léttur bjór og mjúkur en
þó spennandi verkefni fyrir bragðlaukana. Frábær þambari
eða session eins og sumir kalla það og ótrúlegt að
hann sé 6.2%. Bjór þessi er látinn þroskast í
eikartunnum í 18 mánuði og fær þar með sitt
skemmtilega og flókna bragð. Ég gef þessum
bjór topp einkunn eða hér um bil.. 4.5. |