HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
  fróðleikur
 
 
 

Egils Premium

stíll : Íslenskur lager
brugghús : Ölgerðin Egill Skallagrímsson ehf.
land : Ísland
alkóhól : 5.7 %
fyrst smakkað : 6.4.2005
smökkunarstaður : Århus

Það er alltaf gaman að sjá nýjungar í heimi bjórsins og þá sér í lagi á íslenskum markaði.  Premium er nýr lager frá Agli og við erum að tala um bjór sem búinn er til úr íslensku vatni auðvitað en einnig íslensku byggi úr Leirársveit.  Þessi bjór er því eins íslenskur og bjór getur verið án þess að verða vondur.  Bjór þessi er gullfallegur í glasi með léttri froðu og afar tær.  Í nefi má finna "krispí" humla en einnig eitthvað sem minnir á lopa en það er í lagi....lopi er bara svo íslenskt ekki satt?  Í munni er þetta bara hinn ágætasti karl með miklum tærum humalkeim.  Bjórinn er gosríkur mjög og hefur þægilegan biturleika í kinnum.  Fylling er nokkur og eftirbragð er stutt og notalegt.  Þægilega hreinir Hallertau humlarnir kalla fram hungurtilfinningu og maður fer fljótt að hugsa um netta pizzu eða grillmat. Gott framtak frá Agli.  

 

ATH!
Þessi bjór var í boði Jóa og Gúðrúnar takk fyrir það!