web log free Leffe Blonde
     

HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
  fróðleikur
 
 
 

Leffe Blonde

stíll : Belgískt klausturöl
brugghús : InBev Belgium
land : Belgía
alkóhól : 6.6 %
fyrst smakkað : 29.08.1999
smökkunarstaður : Prag - Tékklandi

Leffe Blonde er einn af hinum rómuðu klausturbjórum Belgíu og líklega með þeim þekktari.  Þó þetta sé ekki ekta munka öl (Trappist) þá hefur bruggunarferlinu verið viðhaldið frá klausturtímanum, eins og unt er og útkoman er þetta fallega ljúffenga öl.  Leffe Blonde sem svipar mjög til Leffe Bruin  er mjög bragðmikið öl með miklum ávöxtum á borð við epli og perur jafn í nefi sem og á tungu.  Hann er vel fyrirferðarmikill í munni með massíft bragð sem dúllar við bragðlauka og góm og gefur svo kitlandi og ljúft, sætt eftirbragð sem fjarar út með söknuði. Þetta er án efa með betri bjórum sem ég hef smakkað og af krananum er hann fullkominn.

ATH nú fæst þetta frábæra öl á krana á Íslandi, m.a. á Cafe Kultura!