|
Það
er alltaf gaman þegar maður dettur niður á gullkorn í
lagerfjölskyldunni, hér er einmitt eitt slíkt.
Menabrea Ambrata er koparlitaður amber sem skartar
fínni þéttri og varanlegri froðu. Í nefi eru grösugir
humlar. Munnur lurir á miklum keim með
spriklandi humlum og kolsýru. Humlar og sætt
malt koma hér fram í fínu jafnvægi og gefa þægilega
beiskju en jafnframt pínu sætu í formi karamellu eða
toffee en einnig dálítil heytugga. Ágætis snerpa, fín
mýkt og heilleiki. Pínu málmur. Meðalfylling og ljúft
ljúft eftirbragð sem varir ágætlega. Mjög góður lager
verð ég að segja og sem slíkur fær hann hjá mér fína
dóma eða heilar 4 krúsir. Hafa ber þó í huga að hér er
dæmt sem lager. Þegar flöskunni lýkur þá er ég
bara dálítið súr yfir að eiga ekki meira. Hmmm. |