web log free Mikkeller Draft Bear
     

HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
  fróðleikur
 
 
 

Mikkeller Draft Bear

stíll : Evrópskur sterkur lager
brugghús : Mikkeller brygeri
land : Danmörk
alkóhól : 8.0 %
fyrst smakkað : 7.6.2007
smökkunarstaður : Árósar

Meistararnir Mikkel og Keller koma hér með glænýjan bjór sem þeir kalla Imperial Pilsner. Sjálfur hef ég ekki heyrt um þennan stíl en líklega er þetta eitthvað sem þeir hafa fundið upp sjálfir karlarnir vegna þess að þeir nota pilsner malt og lager ger.  Það er þó ekkert sem hægt er að líkja við pilsner í þessum bjór.  Lager þessi er heil 8% og minnir ansi mikið á IPA í bland við belgískan blond og þeir hitta naglan á höfuðið félagarnir þegar þeir segja "allt í einu er gaman að drekka pilsner" því þó ekki sé um pilsner að ræða þá er bara ansi gaman að drekka þennan lager sem rífur vel í. Þetta er gullfallegur bjór, mattur og með gríðarlega "djúsí" og mjúka froðu. Í nefi er gras og ferskir humlar.  Í munni er sopinn ögn þurr og liggur aftarlega og glöggt má finna að um stóran karl er að ræða.  Mikið bragð með hnetum og áberandi beiskju af humlunum.  Mikið gos er í þessum og verður bjórinn ansi spriklandi fyrir vikið.  Fínasta fylling og gott eftirbragð á léttu beisku nótunum. Já hér er bara um fínasta eintak að ræða og óhætt að mæla með þessum, sér í lagi fyrir þá er una IPA.