|

Hér er minn
annar bjór frá þeim Mikkeller. Þessi lofar góðu enda
er ég farinn að kunna ansi vel við IPA stílinn. Danir
virðast vera að ná góðum tökum á IPA ef marka má t.d.
Nørrebro
Bryhus IPA og svo
þennan fína karl. Herlegheitin byrja strax og ofan í
glas er komið því þetta er gullfallegur bjór, gulur og
mattur með ægilega fínan og mjúkan froðuhaus. Í nefi
má finna hunang, gras eða hey og svo humla. Í munni
mætir manni höggbylgja sem nánast rotar bragðlaukana með
snörpum humlum og þægilegri beiskju sem fer svo út í ögn
súrt grape eða blóðappelsínu það ríkir þó einhver sætur blær
í gegnum allan sopann. Já þetta er afar gómsætur og
bragðmikill bjór með mikla fyllingu og svo þægilegan
eftirleik. Þessi hressandi bjór sæmir sér líklega afar
vel með mat af ýmsum toga já eða bara sem eins konar
lystauki til að vekja sofandi bragðlauka fyrir matarboðið.
Já góður bjór og betri en fyrri bjórinn sem ég smakkaði frá
þeim, Beer
Geek Breakfast. |