web log free Nils Oscar Jul
     

HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
  fróðleikur
 
 
 

Nils Oscar Julöl 2007

stíll :

Belgískt sterköl

brugghús :

Nils Oscar

land :

Svíþjóð

alkóhól :

8.0 %

fyrst smakkað :

15.11.2007

smökkunarstaður :

Árósar

Þessi karl kemur frá litlu sænsku örbrugghúsi Nils Oscar.  Brugghúsið bruggar heila línu af ýmis konar bjór en ég hef enn ekki smakkað nema IPA frá þeim og sá var aldeilis góður.  Það er því í góðri trú sem ég smakka þennan jólabjór frá þeim.  Þetta er svartur bjór með þunna eða enga froðu og í raun pínu óaðlaðandi í glasi. Nefið lokkar heldur ekki því þar má finna þungan reyktan keim. Á bragðið er hann líka mjög spes en þó töluvert jólalegur með reyktum keim og brenndum hnetum, kannski kastaníuhnetur og svo brennt malt. Fjarar annars fljótt út í mildan og þægilegan eftirkeim. Pínu þunnur í restina en liggur þó vel í munni í upphafi með ágætis mýkt. Þrátt fyrir 8% alkóhóls er bjórinn alls ekki merktur af því. Já öðruvísi jólabjór fyrir þá sem vilja eitthvað allt annað.