web log free Ølfabrikkens Kloster Jul
     

HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
  fróðleikur
 
 
 

Ølfabrikkens Kloster Jul

stíll :

Belgískt sterköl

brugghús :

Ølfabrikken

land :

Danmörk

alkóhól :

 9.5%

fyrst smakkað :

20.12.2007

smökkunarstaður :

Árósar

Ølfabrikken er víst eitt af þeim ör-brugghúsum hér í DK sem menn halda mikið uppá þessa stundina.  Ég hef áður aðeins smakkað tvo frá þeim, Kaffeporter, og I.P.A. með sæmilegum árangri.  Þessi er brúnn í glasi með hnausþykkri froðu. Í nefi er sætur keimur af þurrkuðum ávöxtum (sveskjum t.d) og malti.  Í munni er óhætt að segja að um afar bragðmikinn bjór sé að ræða, dálítið á sætu nótunum en þó með pínu vínkeim og loks má finna ögn ristað malt súkkulaði og kaffi í restina.  Þegar líða tekur á bjórinn fer hann hins vegar að verða ögn yfirþyrmandi fyrir minn smekk.  Ég er þó alls ekki að segja að þetta sé vont öl og hvet ég menn til að prófa.  Hins vegar gat ég ekki klárað flöskuna, þetta var bara of mikið af því góða!