|
Paulaner er eitt af stóru brugghúsum
Munchen og þeir brugga ár hvert einn af
Oktoberfest bjórum
hátíðarinnar. Bjórinn er sterkur í alkóhóli og í bragði
þó án þess að vera rammur eða sprittaður. Humlar vel
merkjanlegir en samt er bjórinn í mildari kantinum.
Vottar fyrir hunangi í bakgrunni. Fylling er í meðallagi
þannig að maður getur þambað þennan í lítravís án þess að
rifna (fínn session). Fínn bjór sem smellpassar með svínaskönkum,
kjúkling og öðru ætilegu á Oktoberfest. Já annars er bjórinn
svona dálítið aukaatriði þegar kemur að Oktoberfest, amk
fyrir flesta hátíðargesti því þar snýst allt um að syngja og
dansa og vera glaður. Bjór er bara ágæti leið til að
komast á þetta "gleðistig" sem fyrst. :) |