|
Nú er svo komið að ég er loksins farinn að skoða hinn
víðáttumikla Bandaríkjamarkað
sem er eins konar mekka örbruggsins. Ég rakst á
þetta dularfulla brugghús,
Rogue, í bók eftir meistara Michael
Jackson. Miðarnir eða umbúðirnar eru frekar
fráhrindandi og það eitt gerir bjórinn í mínum augum
enn meira spennandi. Þessi bjór sem bruggaður
var í tilefni "dags hinna dauðu" (gömul Maia hefð) er
hinn ljúfasti mjöður. Í nefi má finna mikinn
keim af sumarblómum og hunangi sem er afar viðeigandi
þar sem um
maibock er að ræða sem bruggaður er til heiðurs
vorsins. Í munni er um mildan bjór að ræða, góð fylling
og léttir humlar með smá IPA keim. Sætt malt, hunang
og kannski karamella. Mjög vel hannaður bjór! |