|
Schneider
& Sohn er af mörgum talið elsta brugghús sem
samfellt hefur bruggað bjór af stílnum
hefeweizen en talið er að þeir hafi bruggað
bjórinn allt frá 1607. Það þýðir að þeir hafa
haft nægan tíma til að fullkomna afurð sína og óhætt
má segja að Schneider Weisse Kristal beri
þess vitni. Þessi gullfallegi og fágaði bjór
er filtreraður sem gefur bjórnum sinn elegant
kristaltæra lit. Bjórinn er engu að síður
hveitibjór. þó svo að mörgum kunni að finnast það
ósennilegt, og að auki er þetta einn besti
hveitibjórinn sem bjórbókin hefur smakkað takk fyrir.
Já léttur með eindæmum og gríðarlega svalandi og
spriklandi ferskur bjór. Tónar af léttu sætu
malti, lítil beiskja og sæta einhver..pera jafnvel? |