|
Bjórbókin
hefur beðið lengi eftir þessum bjór. Nýr
íslenskur bjór sem kallaður er "sælkerabjór".
Væntingarnar eru miklar. Þetta er fallegur
bjór í glasi, gylltur tær og glæsilegur með létta
froðu. Bjórinn kemur strax á óvart þegar kemur
að nefi, því hér eru tærir humlar í
aðalhlutverki í bland við einhvern sætan keim sem
gæti verið malt en minnir dálítið á amarillo humla.
Já gaman. Í munni er mikil fylling, kitlandi gos og
hressandi beiskja frá brakandi humlunum.
Maltið er svo tvinnað inn í að mikilli nákvæmni og
skapar skemmtilegt og þægilegt mótspil við humlana,
einhver karamellukeimur lurir í bakgrunni. Já
ÖB menn hitta hér naglann á höfuð hins íslenska
bjórþambara. Þeir taka litla áhættu en hafa
jafnframt skapað bjór sem stendur upp úr hinni
íslensku bjórflóru. Já líklega besti bjór
Íslands. |