web log free Westmalle Tripel
     

HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
  fróðleikur
 
 
 

Westmalle Tripel

stíll : Trapist/Munkabjór
brugghús : Brouwerij der Trappisten van Westmalle
land : Belgía
alkóhól : 9.5 %
fyrst smakkað : 27.07.2002
smökkunarstaður : Reykjavík og Brussel Belgíu

Ég gæti haft þetta mjög einfalt..."Guð er góður!" en það er bara svo gaman að tala um bjór.  Upplifunin hefst um leið og bjórinn er kominn í fallega bikarlaga glasið sitt þar sem hann daðrar við bragðlaukana og kallar tælandi á þá.  Sætur ferskur ilmur er af þessum bjór með sítrónu undirtón!  Æ blessuðu munkarnir áttu hug minn allan þegar fyrsti sopinn tröllreið bragðlaukunum með massífu bragði sínu.  Hvílíkir snillingar sem þessir guðsmenn eru.  Bjór þessi er heil máltíð, þykkur og svakalega mjúkur með malti og beiskum humlum og einhverjum sítrus blæ í restina.  Langt undur mjúkt eftirbragð með ljúfum mildum humlum og sítrónu/appelsínu keim sem heldur manni í heljargreipum fram að næsta sopa.  Alkóhólið segir líka til sín en þó ekki í bragði heldur sem mikill unaðslegur hiti.