web log free


Heimsókn í ÖB Brugghús- bjórbókin 30.07.08

Bjórbókin heimsótti hið snotra íslenska örbrugghús Ölvisholt Brugghús en það er þaðan sem besti bjór Íslands kemur, Skjálfti.  Það var vel tekið á móti okkur og við fengum m.a. að smakka nýjan bjór sem er í smíðum.  Nánari pistill er væntanlegur hér.

------------------

--------------------------------------------------------------------


Nýr bjór frá ÖB- bjórbókin 20.07.08

Bjórbókin hefur staðfestar fréttir fyrir því að Ölvisholt Brugghús sé um þessar mundir að fínstilla nýja bjór sem kemur á markað á næstu vikum eða mánuðum.  Um er að ræða einhverskonar blöndu af IPA og skosku öli.  Nafnið er ekki komið enn né dagsetning.  Fylgist með hér á Bjórbókinni.

------------------

--------------------------------------------------------------------


Risi verður til - bjórbókin 15.07.08

Nýr ofurrisi í bjórheiminum hefur orðið til.  Í gær tilkynnti hið belgíska brugghús InBev og ameríska AB samruna sinn.  Með því hefur langstærsta bruggsamsteypa veraldar litið dagsins ljós.  Þetta þýðir að sullið Budweiser er nú orðinn bróðir t.d. Leffe og Hoegaarden  Lesa nánar.

------------------

--------------------------------------------------------------------


Íslenskur Stout bara góður- bjórbókin 25.06.08

Jæja þá kom að því að ég fann tíma til að smakka þennan fyrsta stout Íslands.  Viking Stout.  Já viti menn þessi bjór er bara nokkuð góður og gerir stout stílnum góð skil.  Hér er samt um mildari útgáfu að ræða og ætti að ganga vel í alla Íslendinga með smá kjark. Sjá nánar hér. Lesa nánar.

------------------

--------------------------------------------------------------------


Gullfoss bjór - bjórbókin 12.06.08

Já nú er heldurbetur farið að birta yfir hinum íslanska bjórmarkað.  Já því nú í júlí kemur á markað nýr íslenskur bjór frá nýju íslensku örbrugghúsi, Ölgerð Reykjavíkur.  Bjór þessi mun bera hið virðulega og íslenska nafn Gullfoss og er bruggaður eftir skandinavísku lager hefðinni.  Það besta við þetta allt saman er að bruggmeistari Ölgerðarinnar er enginn annar en bjórmógúllinn Anders Kissmeyer sem er snillingurinn á bak við Norrebro Bryghus sem skapar einmitt einn besta bjór Danmerkur að mati Bjórbókarinnar.  Já ég verð bara að segja að nú er ég orðinn spenntur. Hér kemur fréttayfirlýsing Ölgerðarinnar

Bruggmeistari Ölgerðar Reykjavíkur heitir Anders Kissmeyer og er heimsfrægur meðal áhugafólks um bjór og margverðlaunaður.  Anders var gæðastjóri hjá Carlsberg í Danmörku í tæp 20 ár en á nú og rekur eigin bjórgerð og matsölustað í Kaupmannahöfn sem heitir Norrebro Bryghus og er mörgum Íslendingum vel kunnur. Ölgerð Reykjavíkur hefur gert framleiðslusamning við Bruggsmiðjuna á Árskógssandi um að framleiða Gullfoss eftir uppskrift Anders.

Undirbúningur hefur staðið lengi en hófst með því að búinn var til listi með nöfnum 5 bestu bruggmeistara Evrópu og ákveðið var að reyna að fá einn af þeim til samstarfs.  Nafn Anders var efst á listanum og í fyrstu hafði hann lítinn áhuga að vinna með okkur enda meira en nóg að gera hjá honum við eigin bjórgerð, við báðum hann um að taka á móti okkur í Kaupmannahöfn og ræða málið frekar.  Okkur tókst að sannfæra hann um að vera með í verkefninu enda markmiðið háleitt, að búa til besta bjór Evrópu með því að hafa uppá besta hráefninu hvar sem það væri að finna og nota íslenska vatnið, betra gerist það ekki. 
 
Markmið Ölgerðar Reykjavíkur er að bjóða upp á ferskvöru og hágæða bjór.

------------------

--------------------------------------------------------------------


Anchor á Íslandi - bjórbókin 26.05.08

Nú er maður kominn til Íslands fyrir sumarið.  Fljótlega eftir komu mína hingað leit ég við í vínbúðina og viti menn, þar rakst ég á alveg ljómandi góðan amerískan bjór. Sá nefnist Anchor Steam Beer og var einmitt einn af smakkbjórum síðasta Kiddakvölds.  Mæli eindregið með þessum.

------------------

--------------------------------------------------------------------


Gleðilegt sumar! - bjórbókin 6.05.08

Nú er gaman að búa í Danmörku því frá mínu uppáhalds brugghúsi hér, Nørrebro Bryghus, er kominn þessi dásamlega sumarkveðja.  Glænýr á flösku, Stuykman Wit.  Já öskrandi hveitibjór að belgískri fyrirmynd.  Hlakka mikið til að smakka kauða!

------------------

--------------------------------------------------------------------


Smakkkvöld Kidda - bjórbókin 5.05.08

Bjórmenningarfélagið Kiddi tók sig til og smakkaði nokkra vel valda bjóra frá bandarískum örbrugghúsum. Bjórbókin var á staðnum.  Hér má lesa nánar um þennan atburð - nánar!

------------------

--------------------------------------------------------------------


Stout hvað er nú það? - bjórbókin 26.04.08

Ég fæ oft þessa spurningu og finn hvað menn eru mikið að rugla með staðreyndir varðandi þetta.  Dökkur bjór er bara allur eins halda sumir en þvílíkar pælingar geta ekki verið fjarri sannleikanum.  Hér hef ég rissað upp lítinn pistil um stout þennan aldna enska bjórstíl - nánar!

------------------

--------------------------------------------------------------------


Bjórbókin í Morgunblaðið - bjórbókin 21.04.08

Já núna síðastliðinn sunnudag var Bjórbókin hvorki meira né minna valin vefsíða vikunnar í Morgunblaðinu!  Já þar fær Bjórbókin fallega umfjöllun og vil ég hér með þakka þeim er þar skrifar en sá kom ekki fram undir nafni.
Hér má sjá hvernig þetta leit út! - nánar!

------------------

--------------------------------------------------------------------


Innreiðin er hafin! - bjórbókin 11.04.08

Já enn einn bandarískur bjór í safnið.  Horn Dog Barley Wine frá Flying Dog brugghúsinu í Colorado.  Þetta er lítið brugghús með stórt úrval af bjór.  Horn Dog er minn fyrsti frá þeim og lofar bara nokkuð góðu.  Nánar

------------------

--------------------------------------------------------------------


Bandarískur bjór já takk! - bjórbókin 11.04.08

Bjórbókin hefur lengi haft plön um að hella sér út í hinn víðáttumikla bandaríska bjórmarkað.  Ég rakst á þrjá karla frá hinu rómaða örbrugghúsi Rogue og ákvað að hefja ferðina löngu inn á þessar nánast ókönnuðu slóðir.  Nánar

------------------

--------------------------------------------------------------------


Apríl gabb! - bjórbókin 2.04.08

Fréttirnar um Mikkeller í gær voru að sjálfsögðu dálítið ljótt aprílgabb því það væri dásamlegt að geta fengið Mikkeller bjór á Íslandi.  Nánar

------------------

--------------------------------------------------------------------


Nýr bjór á Íslandi! - bjórbókin 1.04.08

Þær stóru fréttir voru að berast að nú sé hægt að fá Mikkeller bjór á Íslandi.  Mikkeller er eitt besta brugghús Danmerkur um þessar mundir.  Bjórinn fæst nú í Heiðrúnu á einstöku tilboði meðan lager endist.  50 kr 60 cl flaska.  Nánar

------------------

--------------------------------------------------------------------


Hvað er páskabjór? - bjórbókin 23.03.08

Það hefur lengi tíðkast að brugga bjór yfir páskahátíðarnar sem er ögn frábrugðinn hinum hefðbundna bjór sem á markaðnum er.  Líklega er hér um danska hefð að ræða.  Nánar

------------------

--------------------------------------------------------------------


Páskabjórinn - bjórbókin 19.03.08

Já nú er tími páskanna og þá gerist það eins og um jólin, já bjór af ýmsum toga sem bruggaður er til heiðurs páskanna flæðir um allar jarðir. Um þessar mundir standa yfir smakkanir á þessum bjór og munu þeir detta hér inn um síðir.

------------------

--------------------------------------------------------------------


Kongens Bryghus tekið fyrir - bjórbókin 15.03.08

Kongens Bryghus er fjörgamalt danskt örbrugghús sem á rætur sínar að rekja aftur til 1442.  Brugghúsið var enduropnað árið 2007 og bruggar nú 4 fastar bjórtegundir.  Bjórbókin tók sig til og smakkaði allt sem brugghúsið hefur að bjóða. Nánar

------------------

--------------------------------------------------------------------


Kaldi Páska - bjórbókin 12.03.08

Kaldi Páskabjór er 3. bjórinn sem ég smakka frá Bruggsmiðjunni og hann reyndist ekki standast mínar væntingar.  Engu að síður ágætis bjór og mun ganga vel í flesta Íslendinga held ég.  Vantar þó allan kraft og karakter. Nánar

------------------

--------------------------------------------------------------------


Skjálfti besti bjór Íslands? - bjórbókin 10.03.08

Jæja loksins komst ég yfir hinn nýja bjór Skjálfta frá Ölvisholti.  Orðið á götunni er að hér sé einfaldlega besti bjór Íslands í flösku kominn.  Bjórbókinn kannar hér með hvort þau orð séu rétt. Nánar

------------------

--------------------------------------------------------------------


Gleðilega Páska! - bjórbókin 8.03.08

Nú líður að páskum og tímabært að fara smakka eitthvað af nýjum páskabjór. GB er fyrsti nýji páskabjórinn sem ég smakka þetta árið.  Þetta er bara ágætur bjór en alls engin snilld. Nánar

------------------

--------------------------------------------------------------------


Svakalegur karl! - bjórbókin 6.03.08

Ég smakkaði um daginn mjög sérstakan bjór, North Bridge Extreme, frá Nørrebro Bryghus. Um er að ræða sérstakan tripel IPA að kanadískum uppruna.  Þetta er alveg magnaður bjór og ægilega sorglegt að ekki sé hægt að fá hann á flöskum nema í brugghúsinu. Nánar

------------------

--------------------------------------------------------------------


Besti Lager í heimi? - bjórbókin 4.03.08

Eftir að hafa hugsað þetta nánar og prófað og endursmakkað þá hef ég komist að því að í þau ár sem ég hef smakkað bjór þá hef ég ekki lent á eins mögnuðum lager og Nørrebro Bryghus New York Lager. Nánar

------------------

--------------------------------------------------------------------


Gleðilegan bjórdag - bjórbókin 1.03.08

Já til lukku með daginn bjórunnendur nær og fær.  Hvað er betra á svona degi en að fá glænýjan íslenskan bjór á markað. Já skjálftinn frá Ölvisholti er kominn en er því miður uppseldur.  Vonandi kemur nýr "skammtur" innan tíðar. Spennandi!

------------------

--------------------------------------------------------------------


Nýr frá GB í bókina  - bjórbókin 27.02.08

Bjórbókin heldur áfram rannsókn sinni á bjór frá hinu danska Gourmetbryggeri (GB).  Að þessu sinni er það Barley Brew.  Bjórinn bætist í hóp þeirra 5 sem Bjórbókin hefur áður smakkað frá þeim - sjá hér!

------------------

--------------------------------------------------------------------


Carsberg án PILSNERS  - bjórbókin 10.02.08

Nú er breytingar í vændum hjá Carlsberg því þeir ætla að hætta með pilsner textan á umbúðum sínum.  Bjórinn verður sá sami samt sem áður. Spurning hvað neytendur segja við þessu? Nánar

------------------

--------------------------------------------------------------------


Magnaður lager  - bjórbókin 08.02.08

Menabrea Ambrata er bara hinn magnaðasti lager af amber gerð.  Það er alltaf gaman að detta niður á svona góðan lager inn á milli.  Þessi er sko þess virði að smakka nammi namm!. Nánar

------------------

--------------------------------------------------------------------


Kaldi Páskabjór!  - bjórbókin 07.02.08

Svo virðist sem Bruggsmiðjan ætli að brugga sérstaka útgáfu af Kalda fyrir Páskana. Bjórinn mun verða bruggaður í takmörkuðu magni þannig það er um að gera að fylgjast vel með hillum ÁTVR. Nánar

------------------

--------------------------------------------------------------------


Nørrebro Skargaards Porter - bjórbókin 01.02.08

Já loksins kom að því, Bjórbókin koms yfir porterinn frá Nørrebro  Bryghus sem jafnframt er eitt af þrem uppáhalds brugghúsum Bjórbókarinnar.  Þetta er annars porter eins og porter á að vera og líklega fínn fyrir þá sem kunna vel við stílinn. Nánar

------------------

--------------------------------------------------------------------


Þorra Kaldi - bjórbókin 01.02.08

Bjórbókin vill bara benda landsmönnum á að Bruggsmiðjan hefur skapað bjór fyrir Þorrann.  Bjór þessi nefnist Þorra Kaldi og ku vera skemmtileg tilbreyting.  Bjórbókin hefur þó enn ekki bragðað á þessum spennandi bjór en vonast til að að því verði.

------------------

--------------------------------------------------------------------


Enn einn nýr frá Íslandi - bjórbókin 31.01.08

Jökull bjór frá Stykkishólmi bætist brátt í hóp nýrra bjóra frá Íslandi.  Bjórbókin vonast til að ekki sé um enn einn lagerinn að ræða heldur eitthvað spennandi öl (ale).  Hins vegar er dálítið spennandi að sjá hvað kemur út úr þessu þar sem bruggmeistarinn er fyrrum mjólkurfræðingur hmmm.  Meira um þetta!

------------------

--------------------------------------------------------------------

Nýr frá Nørrebro - bjórbókin 28.01.08

Svo virðist sem nýr bjór sé kominn á flösku frá Nørrebro Bryghus, Kings County Brown. Ef þetta er rétt þá vonast ég til að komast í þennan bjór sem allra allra fyrst.  Lýsingin á honum er nefnilega afar lofandi.  Meira um þetta!

------------------

--------------------------------------------------------------------

Dýrasti bjór heims - bjórbókin 26.01.08

Dýrasti bjór veraldar fæst frá og með morgundeginum á útvöldum stöðum í Danmörku.  Bjórinn kemur frá Carlsberg og heitir Jacobsen Vintage nr 1, 2008.  Flaskan kostar litlar 2008 danskar kr eða yfir 20.000 ísl kr.  Aðeins eru framleiddar 600 flöskur.  Meira um þetta!

------------------

--------------------------------------------------------------------

Gourmet kvöld - bjórbókin 24.01.08

Í tilefni þess að nú líður senn að því að fyrsti íslenski "GB" bjórinn komi á markað á klakanum ákvað Bjórbókin, ásamt einum virkasta meðlim Bjórmenningarfélags Kidda um þessar mundir, Óla Helga að kanna nánar GB línuna .  Meira um þetta!

------------------

--------------------------------------------------------------------

Skjálfti á Íslandi - bjórbókin 24.01.08

Já nú er loksins komið að því.  Nýr íslenskur bjór er alveg að detta inn á markað.  Skjálfti mun hann heita og kemur frá brugghúsinu Ölvisholt Brugghús sem er glænýtt brugghús byggt með aðstoð hins danska Gourmet Bryggerie.  Meira um þetta!

------------------

--------------------------------------------------------------------

Frábærar fréttir fyrir Árósarbúa - bjórbókin 19.01.08

Nú hefur hið stórbrotna brugghús Nørrebro Bryghus plön um að opna útíbú í Árósum.  Þetta eru góðar fréttir fyrir bjórunnendur í Árósum og mun Bjórmenningarfélagið Kiddi án efa kætast.

------------------

--------------------------------------------------------------------

Mikkeller enn og aftur - bjórbókin 18.01.08

Þeir virðast endalaust geta komið manni á óvart þessir pörupiltar hjá Mikkeller.  Hér koma þeir með enn eitt undrið.  Vinabrugg sem er sambland af sterkum belgískum blond og öflugum humluðum Mikkeller bjór.  Struise Mikkeller heitir kauði og er bara ansi fínn.

------------------

--------------------------------------------------------------------

Enn einn jólabjórinn - bjórbókin 15.01.08

Já ég er enn að setja inn jólabjóra hér inn.  Þennan smakkaði ég með Valla félgaga mínum í nóvember.  Bara nokkuð góður bjór frá Belgíu.  Bjórinn ber það merkilega nafn 't Smisje Kerst og fær hjá mér 4 krúsir.

------------------

--------------------------------------------------------------------

Nákvæmlega svona á bjór að vera - bjórbókin 12.01.08

 Já hörð orð en rétt!  Westvleteren 8 er einfaldlega það góður bjór að ég þori fullkomlega að kasta þessu út svona.  Þetta er bara dásamleg upplifun alla leið.  Frábært dæmi um góðan belgískan munkabjór.  Eitthvað sem allir verða að prófa á lífsleiðinni!

------------------

--------------------------------------------------------------------

Ceres ekki meir! - bjórbókin 10.01.08

Já nú er það búið! Ceres brugghúsið mun leggja niður störf í lok ársins 2008.  Það þýðir að stærsta og elsta brugghús Árósa verður ekki meir.  Bjórinn mun hins vegar áfram vera bruggaður í Óðinsvéum og Fakse.  Ástæðan, segja talsmenn Royal Unibrew, eru peningaörðuleikar og harðari markaður. Nánar

------------------

--------------------------------------------------------------------

Fleiri jólabjórar bætast við - bjórbókin 21.12.07

Jæja þá hafa nokkrir nýjir jólakarlar bæst við listann. Þetta eru allt mjög ólíkir bjórar og misgóðir.  Nánar má lesa um hvern og einn þeirra hér.  Hinn sænski Nils Oscar Julöl 2007, tveir danskir, Ølfabrikkens Kloster Jul og Jensens Julebryg og svo þýskur Porter + Punsch jólabjór.

------------------

--------------------------------------------------------------------

Kampavín bjórheimsins - bjórbókin 19.12.07

Já þetta er ekki jólabjór en samt inniheldur hann dálitla jólatóna.  Ég smakkaði þennan karl í nóvember og var fyrst núna að skella honum inn.  Frábær og spes bjór.  Deus Brut Des Flandres.

------------------

--------------------------------------------------------------------

Jól í flösku! - bjórbókin 14.12.07

Mikkeller gera ansi ljúfan og skemmtilegan jólakarl þetta árið Santas Little Helper 2007.  Bjórinn er heilmikill laukatryllir og býður uppá mikið verkefni fyrir öll skilningarvit.   Dálítil sæta í bland við malt og humla.  Gríðarlegt alkóhólið er svo varla merkjanlegt.  Frábær jólabjór fyrir þá sem þora.

------------------

--------------------------------------------------------------------

Hvar eru jólin? - bjórbókin 13.12.07

Það eru undarlegir hlutir að gerast í Danmörku þetta árið.  Já ég veit ekki hvort menn hafa tekið eftir því en einn besti bjór Carlsbergs er ekki enn kominn út.  Já ég er að tala um jólabjórinn þeirra Carsl Jul?  Hvað er hér á seyði ætla þeir sér bara að láta sér nægja að bjóða Tuborg Jóla?  Það eru sorglegar fréttir ef satt er.

------------------

--------------------------------------------------------------------

Nýr íslenskur bjór - bjórbókin 26.11.07

El Grillo er nýr íslenskur bjór sem bruggaður er af Egils fyrir Ölgerðina El Grillo ehf ef ég hef skilið það rétt.  Þetta er ágætis lager á léttu nótunum en svo sem ekkert nýtt hér á ferð.  Það er þó alltaf gaman þegar nýr bjór er skapaður á íslandi.  Gott framtak þó svo að öl (ale) hefði verið skemmtilegra. Meira

------------------

--------------------------------------------------------------------

Norræn bomba - bjórbókin 09.09.07

Bjórbókin tók skúrk í smökkunarmálum og smakkaði nokkra bjóra af ýmsum toga.  Hér má nefna Mikkeller Draft Bear, Brockhouse IPA, Nils Oscar Indian Ale, Brewpub København Amarillo Red Ale og Nøgne Ø Imperial Stout svo einhverjir séu nefndir.  Hmm þegar litið er yfir þetta þá eru þetta allt norrænir bjórar.

------------------

--------------------------------------------------------------------

Bjórgúrúinn er látinn - bjórbókin 03.09.07

Michael Jackson sem líklega verður að teljast heimsins besti og trúfastasti bjórgæðingur er dáinn.  Michael dó á heimili sínu í London þann 30. ágúst síðastliðinn.  Já maðurinn sem opnaði augu bjórbókarinnar fyrir veröld bjórsins er farinn..þetta er undarleg tilfinning. Hér má lesa nánar um þetta mál. Vonandi var það ekki lifrin sem gaf sig!

------------------

--------------------------------------------------------------------

3 nýjir frá Nørrebro - bjórbókin 27.08.07

Já þetta verða nú að teljast ein bestu tíðindi í langan tíma.  Snillingarnir frá Nørrebro bjóða okkur nú tvo nýja bjóra á flösku og svo er sá þriðji væntanlegur innan skamms.  Ég hef reyndar ekki smakkað neitt af þessu enn sem komið er en úr því verður bætt og það alveg á næstu dögum.  Nánar

------------------

--------------------------------------------------------------------

Gourmet öl til Íslands - bjórbókin 05.07.07

Í upphafi 2008 þá stendur til að opna nýtt brugghús hér á Íslandi að fyrirmynd hins danska örbrugghúss Gourmetbryggeriet. Þetta er skemmtileg nýbreytni og fagnar Bjórbókin þessu.  Reyndar hef ég aðeins smakkað einn bjór frá GB og sá var ansi slakur.  Nánar

------------------

--------------------------------------------------------------------

Hressandi sumarsmellur - bjórbókin 08.06.07

Bjórbókin smakkaði þennan fína kriek um daginn.  Hér er um alvöru kriek að ræða, þe.a.s. ekki eitthvað sykurbætt sull.  Sérstakt er svo einnig að alkóhólið er upp í 6.5% sem er óvenjulegt fyrir kriek.  Alkóhólið finnst hins vegar ekki í bragði.  Nánar

------------------

--------------------------------------------------------------------

Enn einn IPA - bjórbókin 31.03.07

Þar sem ég er á einhverju I.P.A. tímabili í lífi mínu þá ákvað ég strax að prófa þennan þegar ég sá hann í hillunum.  Danskur I.P.A er nefnilega ansi vel lukkaður bjór.  Þessi, Brewpup København Atlantic IPA er fyrsti bjór þeirra sem kemur á flöskur.  Þetta er I.P.A eins og þeir gerast bestir. Namm.   Nánar 

------------------

--------------------------------------------------------------------

Fyrsta örbrugghús Íslands - bjórbókin 23.03.07

Það var kominn tími á að fá að bragða á afurð fyrsta og eina örbrugghúss Íslands, Bruggsmiðjunni. Bjór þeirra sem þeir kalla Kalda er bruggaður að tékkneskri fyrirmynd og er bara hinn fínasti pilsner. Bjórbókin fagnar tilurð Bruggsmiðjunnar og bíður spent eftir nýjum bjór frá þeim og þá vonandi úr ölfjölskyldunni :) .   Nánar 

------------------

--------------------------------------------------------------------

Tveir nýjir - bjórbókin 18.03.07

Ég smakkaði nýjan danskan I.P.A. sem var allt í lagi og svo alveg glænýjan bjór frá Liefmans er Abdis kallast.  Abdis er er ný klausturlína frá Liefmans, það er því hægt að fá blond, dubbel og svo tripel.  Tripelinn þeirra er alveg magnaður og því háar væntingar til hinna tveggja. Nánar 

------------------

--------------------------------------------------------------------

Bráður bani - bjórbókin 16.03.07

Ég hef alltaf verið hrifinn af hinum belgíska gueuze og hér er eitt dæmi um vel lukkaðan bjór af þeim stíl.  Mort Subite Gueuze er ansi þægilegur og svalandi bjór sem gengur vel á heitum sumardegi.  Pöbbinn sem bjórinn dregur nafn sitt af er einnig í topp klassa og gaman að heimsækja ef maður á leið um Brussel. 

------------------

--------------------------------------------------------------------

Ljúfur nýr páskabjór - bjórbókin 02.03.07

Hér er enn ein rósin í hnappagat Nørrebro Bryghus, Påske Bock. Já þessir meistarar virðast bara ekki geta klikkað þegar að bjórnum kemur.  Þessi fíni bjór er amk enn eitt dæmið um vel lukkaðan bjór.  Fínn matarbjór og notalegur yfir páskana.  Hmmm hvernig ætli hann sé með páskaegginu?  Nánar.

------------------

--------------------------------------------------------------------

Til hamingju með daginn - bjórbókin 01.03.07

1. mars er mikill dagur fyrir bjórunnendur á Íslandi og ástæða til að fagna því þennan dag árið 1989 var bjórbanni aflétt á Íslandi og þar með hófu Íslendingar ferð sína inn í siðmenninguna.  Nú 18 árum síðar hefur hins vegar ekki mikið gerst í bjórmenningunni en við vonum að breytingar séu handan við hornið...Bjór er ekki bara bjór!

------------------

--------------------------------------------------------------------

Sérstakur sælkeri - bjórbókin 17.02.07

Já mikil ósköp, nú er lítil bjórbók aldeilis hlessa?  Hér er sko furðulegur og jafnframt ansi ljúfengur bjór á ferð, Innis and Gunn Oak Age Beer.  Eins og nafnið bendir til þá er hér bjór sem hefur legið í eikartunnum áður en honum er tappað á flöskur.  Útkoman er furðulega góður bjór með karamellu/toffee keim með kókos og þægilegum humlum. Namm!. Nánar

------------------

--------------------------------------------------------------------

IPA bjórstíllinn - bjórbókin 20.01.07

Ég hef verið að "endurskoða" bjórstílinn IPA eða Indian Pale Ale að undanförnu og hef komist að því að þessi stíll á bara nokkuð vel við mig.  Nýverið prófaði ég tvo danska IPA, frá Mikkeller og Nørrebro, sem komu mér skemmtilega á óvart og nú er það bandarískur IPA, East India Pale Ale, sem ég vonast til að standist væntingar. Nánar

------------------

--------------------------------------------------------------------

Fyrsti bjór ársins - bjórbókin 12.01.07

Fyrsti bjór ársins 2007 er jólabjór frá litlu brugghúsi á Grænlandi er kallast Greenland Brewhouse.  Brugghús þetta státar af því að nota tærasta vatn sem um getur í bjóra sína.  Þeir bræða nefnilega sjálfan 2000 ára Grænlandsísinn.  Jólabjór þeirra er einn ef þremur og er bara ágætasti karl. Nánar

------------------

--------------------------------------------------------------------

Egils Premium bjór fluttur til Þýskalands - mbl 9.1.07

Í kjölfar þess að Egils Premium hlaut verðlaun á European Beer Star keppninni í Bæjaralandi í Þýskalandi hefur aðalstyrktaraðli þeirrar hátíðar óskað eftir því að fá að flytja inn Egils Premium bjór.

Andri Þór Guðmundsson forstjóri Ölgerðarinnar, segir í tilkynningu að þetta sé mikill heiður fyrir sig og sitt fólk, sérstaklega bruggmeistarann Guðmund Mar Magnússon.

„Fulltrúar BayWa AG í München höfðu samband við okkur eftir Beer Star keppnina og óskuðu eftir að fá að flytja inn heilan gám af Egils Premium til að nota við kynningarstörf. Miðað við bjórframleiðsluna á þessu svæði þá er þetta eins og við værum að flytja kaffi til Brasilíu eða ísmola til Grænlands," segir Andri Þór í tilkynningunni.

------------------

--------------------------------------------------------------------

Bjórframleiðendur komast að „sögulegu samkomulagi" - mbl 8.1.07

Tékkneska brugghúsið Budejovicky Budvar og bandaríski bjórframleiðandinn Anheuser-Busch hafa komist að „sögulegu samkomulagi” að eigin sögn um að flytja tékkneska bjórinn Budvar til Bandaríkjanna. Fyrirtækin tvö hafa um árabil barist um yfirráðarétt á bjórheitunum Budweiser og Budvar, en bæði hafa þau framleitt bjór síðan á 19. öld.

Samkvæmt samkomulaginu mun Anheuser-Busch flytja inn Budvar bjórinn héðan af, en hann hefur verið seldur í Bandaríkjunum undanfarin fimm ár undir merkinu Czechvar. Vinsældir innflutts bjórs hafa aukist mikið í Bandaríkjunum undanfarin ár.

Jiri Bocek, forstjóri Budvar, kallar samninginn sögulega breytingu á samskiptum fyrirtækjanna, en þau eiga nú í um 40 málaferlum um allan heim, en Anheuser-Busch, sem er mesti bjórframleiðandi Bandaríkjanna hefur barist fyrir einkaleyfi á merkjunum Budweiser og Budvar í rúma öld.

Budejovicky Budvar var stofnað árið 1895 í Ceske Budejovice, sem Þjóðverjar kölluðu Budweis. Þar hefur bjór verið bruggaðir síðan árið 1265.

Stofnendur Anheuser Busch stofnuðu brugghús sitt í St. Louis í Bandaríkjunum árið 1852 en hófu að selja bjórinn Budweiser árið 1876 þar sem þýskir innflytjendur þekktu nafnið.

------------------

--------------------------------------------------------------------

Bjórgæðingar í Norðurhöfum - bjórsullur 4.1.07

Nú fyrir skömmu átti sér stað nyrsta bjórsmökkun sem sögur fara af (amk sem bjórbókinni er kunnugt um) þegar nokkrir góðvinir bjórbókarinnar settust niður til að dreypa á nokkrum velvöldum og heimfluttum bjórum. Atburður þessi fór fram á Húsavík. Forsprakki þessa hóps, Bjórsullur nokkur skráði allt sem fram fór niður og hér er hans saga.

------------------

--------------------------------------------------------------------

Gleðileg Jól! - bjórbókin 26.12.06

Gleðileg jól allir sem einn.  Hér er enn einn jólabjórinn Val-Dieu Biére de Noél.  Smakkaði hann reyndar þann 18.12. en set hann samt inn núna.  Þetta er mjög ljúfur jólakarl og ekkert of sterkur.  Fínt að fá sér eitt eða tvö glös af þessum t.d. á áramótum eða kannski fyrir háttinn á aðfangadag. Nánar.

------------------

--------------------------------------------------------------------

Heja Norge! - bjórbókin 18.12.06

Norðmenn kunna líka brugga bjór og þar í landi má finna nokkur "mikrobrugghús" sem brugga afbragðs bjór ef marka má manna róm.  Þessi karl, AAss Juleøl er norskur jólabjór og jafnframt minn fyrsti norski bjór satt að segja.  Já þetta er bjór af bock stíl og bara alls ekki svo vitlaus. Nánar.

------------------

--------------------------------------------------------------------

Hvar er jólabjórinn? - bjórbókin 18.12.06

Já úrvalið er ekki uppá marga fiska heima á klakanum þegar að jólabjórnum kemur.  Íslendingar geta valið á milli þriggja íslenskra jólabjóra sem má nú teljast ágætt.  Þetta eru þó allt saman léttir lagerbjórar.  Hinn danski jólatuborg er svo einnig á boðstólum en aftur er um að ræða léttan lager sem reyndar í ár er hræðilegur.  Það hefur eitthvað misfarist hjá þeim Dönum þetta árið.  Það sem vantar er eitthvað af hinum rómuðu jólabjórum úr ölfjölskyldunni, svo sem St Feuillien, Youn'g Christmas Pudding Ale eða álíka.  Reynar var einu sinni hægt að fá Delirium Christmas sem var ágætur og í fyrra man ég eftir að Samuel Adams Winter Lager lét sjá sig í ÁTVR, en reyndar í mýflugumynd því hann kláraðist löngu fyrir jól.  Reynar er þetta einmitt vandamálið við þá fáu jólabjóra sem fáanlegir eru í ÁTVR, þeir klárast löngu fyrir jól vegna þess að Egils og Viking og aðrir sem hlut eiga í máli eru svo logandi hræddir við að sitja uppi með smá lager.  Já þá er betra að brugga bara smá sýnishorn til að geta sagst hafa bruggað jólabjór...ægilega sorglegt!En já hvað er til ráða þegar ástandið er sem raun ber vitni?  Ég held að maður verði annað hvort að koma með sinn jólabjór sjálfur inn í landið (sem ég reyndar mun gera í ár) eða að reyna finna einhvern bjór sem gæti gengið í hlutverk jólabjórs.  T.d. held ég að Westmalle Dubbel gæti smellpassað sem jólabjór og það er bjór sem á víst að fást á Íslandi í dag.  Westmalle Dubbel er sko ekkert slor og kemur frá einu af 6 Trappist munkaklaustrum veraldar.

------------------

--------------------------------------------------------------------

Nýr Leffe! - bjórbókin 12.12.06

Hó hó hó, nú hefur Leffe fjölskyldan stækkað um einn bjór, Leffe 9.  Já bjór þessi er 9% karl og á líklega að vera í anda hinna belgísku tripel bjóra.  Þetta er ágætur karl en samt ekkert sérstakur.  Er í raun eins og Leffe Blond nema bara með öflugari bragð og alkóhól er meira áberandi. Nánar.

------------------

--------------------------------------------------------------------

Jólabjórinn - bjórbókin 7.12.06

Jæja þá eru að koma jól enn einu sinni sem þýðir að JÓLABJÓRINN er kominn í hillurnar.  Hér í Danmörku er úr nóg af taka.  Ég t.d. smakkaði þennan magnaða jólabjór sem kallast La Binchoise Speciale Noel.  Þetta sér í lagi magnþrunginn bjór með mikinn karakter.  Mæli eindregið með þessum yfir jólin (fyrir þá sem tök hafa á) . Lesa nánar!

------------------

--------------------------------------------------------------------

Jæja smá líf - bjórbókin 29.06.06

Jæja er ekki kominn tími á smá hreyfingu hérna.  Jæja ég smakkaði þennan margrómaða stout sem Micheal Jackson sjálfur mælir eindregið með. Já ég er sjálfur sáttur við karlinn þó svo að venjulega sé stout ekkert fyrir mig.Já Lion Stout frá Sri Lanka er bara ansi ljúfur og get ég því vel mælt með honum.  Góður sælkeri með krydduðum mat. Lesa nánar!

------------------

--------------------------------------------------------------------

Síðasta smökkunin  - bjórbókin 06.06.06

Já dagur Djöfulsins í dag og heimsendir yfirvofandi samkvæmt spámönnum.  Ekki seinna vænna að smakka nýjan bjór.  Hver veit nema þetta sé síðasta smökkunin.  Í tilefni dagsins smakkaði Bjórbókin því nokkra spennandi karla og þar á meðal Cookie Beer sem er belgískur "kökubjór".  Mjög spes. Lesa nánar!

------------------

--------------------------------------------------------------------

Nýr frá Ceres  - bjórbókin 31.5.2006

Í fyrra var það Ceres Royal Red sem tók hinn almenna danska lagersullara með stormi en nú er það Ceres Royal Weiss.  Þessi bjór sem kom út fyrir fáeinum vikum er sumarbjórinn í ár frá Ceres.  Bjór þessum er ætlað það hlutverk að vera svalandi hressing á heitum sumardegi.  Bruggaður í anda belgískra hvítbjóra.  Sæmilegasti sopi. Lesa nánar!.

------------------

--------------------------------------------------------------------

Pólverji á klakann?  - bjórbókin 29.5.2006

Lítill fugl gaukaði því að mér um daginn að hinn pólski bjór Kozlak Amber væri líklega á leið til landsins nú í sumar ásamt Amber classik sem ég hef að vísu ekki smakkað sjálfur.  Kozlak er hinn ágætasti bock sem óhætt er að prófa.  Það er alltaf gaman þegar eitthvað nýtt bætist við í hillur ÁTVR, til lukku með það íslendingar.

------------------

--------------------------------------------------------------------

Enn einn frá Nørrebro  - bjórbókin 27.5.2006

Ravnsburg Rød er án efa sá bjór sem ég mæli með í sumar úr danskri bjórflóru.  Bjór þessi sem er Írskt Rauðöl er sérstaklega ljúffengur og þægilegur bjór sem hentar afar vel sem "session" bjór.  Það er Nørrebro Bryghus sem á heiðurinn af þessum frábæra bjór sem kom mér gjörsamlega í opna skjöldu þegar ég bragðaði á honum.  Lesa nánar!

------------------

--------------------------------------------------------------------

Besti bjór Danmerkur?  - bjórbókin 20.5.2006

Það er spurning? Ef Bombay Pale Ale frá Nørrebro Bryghus er ekki besti bjór Danmerkur þá er hann amk ansi nálægt því.  Hér er um sérstakelga ljúffengan drykk að ræða úr Indian Pale Ale fjölskyldunni.  Brakandi og hressandi bjór með mikinn karakter.  Lesa nánar!

------------------

--------------------------------------------------------------------

Kaffi og bjór..afhverju ekki?  - bjórb. 14.5.2006

Já það er nefnilega vel hægt að brugga bjór og nota kaffi til bragðbætingar.  Oft minnir ristað maltið á ristaðar kaffibaunir og þá sér í lagi hið dökka ristaða malt sem notað er í porter og stát.  Þessi fíni bjór er bruggaður með kaffibaunum frá Súmötru og er bara hin ágætasta hressing þó svo að kaffibragð mætti vera meira. Lesa nánar!

------------------

--------------------------------------------------------------------

Sælgæti í flösku - bjórbókin 14.5.2006

Það er kominn tími á einhverja hreyfingu hér.  Bjórbókinn smakkaði á dögunum frábært flæmskt rauðöl sem heitir Duchesse De Bourgogne.  Bjór þessi sem þroskast í 18 mánuði í eikartunnum er ferskur og léttur og afar bragðgóður.  Bjórbókin mælir sterklega með þessum Lesa nánar!

------------------

--------------------------------------------------------------------

Bjórsmakk í Norðri - bjórsullur desember 2005

Norður undir íshafi langt, langt norður af þeim stað er sunnlendingar álíta vera heimsendi voru samankomnir nokkrir spennuþrungnir bragðlaukar með eftirvæntingarseyðing í hjarta. Bjórsmakkarar voru þrír að þessu sinni. Einn að eigin mati nokkuð vanur. Einn mjög áhugasamur og einn alveg gjörsamlega rennandi blautur á bakvið eyrun. Lesa nánar!.

------------------

--------------------------------------------------------------------

Enginn jólabjór á klakanum - bjorbókin 04.01.2006

Mikið er maður orðinn þreyttur á að koma heim til heimalandsins og í þá bjórómenningu sem þar ríkir.  Í ár var það sem fyrr skammarlegt hve úrval jólabjórs var lélegt í hillum einokunarvaldsins ÁTVR.  Viking var með einn jólalager, Egils með tvo og svo var hægt að fá hinn danska Tuborg, rónabjórinn í Danmörku Harboe sem seldur var sem eðalbjór í Ríkinu og loks Royal X-mas sem reyndar er ansi góður bjór.  Eitthvað var pantað inn af vetrarbjór (wintage) þetta árið sem ekki er eiginlegur jólabjór heldur bjór sem er bruggaður fyrir háveturinn og er oft af gerðinni öl.  Þetta þótti mönnum aldeilis jákvæð þróðun og þegar fréttist af hinum rómaða Samuel Adams Winter lager komust margir í jólastemninguna.  Bjórbókin sem knúin var til að koma heim á klakann þetta árið var ein þeirra.  Með tilhlökkunarglampa í augum og spennta bragðlauka rölti ég inn í ÁTVR mitt í jólastressinu í þeim hugleiðingum að kaupa mér nokkra Samuel Adams Winter Lager til að róa taugar og stabilísera mallakútinn en viti menn hillurnar voru galtómar.  Það var sko löngu búið að selja síðasta Winter Lagerinn í gervöllu ríkinu.  Þetta voru jú mikil vonbrigði og ég fann tárin streyma niður vangana.  Í örvæntingu minni ákvað ég að reyna að gera gott úr því sem komið var og kaupa mér einhvern annan jólabjór svo sem Royal X-mas en hann var líka búin og sömu sögu var að segja um alla aðra jólabjóra!!!  Hvað var að gerast?  2 dögum fyrir jól var ekki hægt að fá einn af hornsteinum sannrar jólastemningar, sjálfan jólabjórinn?  Að vísu voru þarna stöku dósir af Harboe Julebryg sem er einn af rónabjórum Danmerkur og þá hollara að drekka skólp...ég lét hann alveg vera.  Já þetta var mikið áfall fyrir lítinn bjórkarl.  Það má kannski líkja þessu við að fá ekki skötuna á Þorláki eða Rjúpur á aðfagnadegi fyrir þá sem slíkan mat borða. 
Ég fór bugaður út úr ÁTVR þennan dag með lítið annað en nokkrar piparkökur í vasanum og útbrunnið VISA kort í veskinu.
Hver var ástæðan?  Jú líklegast er að menn sem sjá um þessa hlið málsins, þ.e.a.s. innflytjendur og bruggarar hafi verið svona skelfingu lostnir yfir að selja ekki allan þann bjór sem þeir settu í ríkið.  Hræðileg tilhugsun ekki satt og því var betra að bara framleiða eða flytja inn örlítið brot af þessum bjórum.
Já ekki er allt ruglið eins, auðvitað skemmist bjórinn ekki þó svo að menn klári hann ekki fyrir jól.  Menn drekka nefnilega líka bjór milli jóla og áramóta og jafnvel um og eftir áramótin. Já þetta var bara enn ein staðfestingin á hvílík eindæma bjórómenning ríkir í landinu.

------------------

--------------------------------------------------------------------

Nýr Jólabjór í bókina - bjorbókin 03.12.2005

Segja má að Young's Christmas Ale sé einn af þremur jólabjórum frá Young.  Þetta er fallegur bjór í glasi með ágætis froðu.  Í munni er hann þægilegur og liggur vel með fína fyllingu.  Bragðgóður er hann með eindæmum með miklum spriklandi humlum og þægilegan biturleika. Lesa nánar!

------------------

--------------------------------------------------------------------

Jingle Ale jólabjór - bjorbókin 02.12.2005

GB Jingle Ale er danskt jólaöl frá litlu Brugghúsi í Hróarskeldu.  Nafnið lofar góðu og innihaldslýsingin er afar kræsileg, hunang, múskat og kanil!  Hins vegar er ekkert sem minnir á jól né innihaldslýsingu og í heild sinni er bara um frekar lakan bjór að ræða.

------------------

--------------------------------------------------------------------

Trappist er endurfæddur - bjorbókin 15.10.2005

Magnað, nú hafa samtökin "Internationale Vereniging Trappist" ákveðið að leyfa aftur La Trappe bjórnum frá De Koningshoeven að bera merki hinna ósviknu munkabjóra eða Trappist.  Klaustur þetta í Hollandi bruggar bjór sem ber nafn klaustursins La Trappe en það er þaðan sem nafn Trappist munkareglunnar er komið.  La Trappe bjórinn var áður einn af hinum ósviknu munkabjórum en svo í kringum 1999 tók hið hollenska brugghús Bavaria yfir brugguninni og flutti hluta bruggfelisins í sín eigin húsakynni.  Bjórinn stóðst því ekki lengur þær kröfur sem þurfti til að mega bera Trappist merkið.

Nú eru hins vegar aðstæður aftur orðnar þannig að bruggunin fer öll fram í klaustrinu og því hefur La Trappe aftur hlotnast hinn virðulegi Trappist staðal.

------------------

--------------------------------------------------------------------